Desperate housewife
16.10.2009 13:24:11 / oskarosin

Here goes nothing.....

Já ég held að fólkið mitt sé betur sett andlega ef ég hendi úr mér hingað inn....það er ekki auðvelt að búa með mér þegar ég má ekki gera neitt og verð að vera hér heima allan daginn aðgerðalaus....ég er meira að segja farin að taka eftir því hvað ég er orðin leiðinleg !!!

Þannig er að ég var að koma úr aðgerð og má ekkert gera þess vegna....jú ég má liggja upp í sófa og horfa á sjónvarpið en það fannst mér fínt í c.a. 2 daga....en nú er komin vika frá aðgerð og ég er ekki að fíla þetta !!!!

Þegar ég var alveg hress og gat stundað vinnu og sinnt börnum og búi, þá dreymdi mig um það að fá viku frí frá öllu þessu og geta bara verið í náttfötum og legið eins og klessa einhverstaðar helst með þvaglegg þræddan svo að ég þyrfti ekkert að standa upp!!!!  Jú jú þessir blessuðu draumar mínir rættust og það ekki alveg á þann veg sem ég hafði óskað eftir og ég að drepast úr vanþakklæti !!!!

Mig hefur sjaldan langað eins mikið að taka rodeo session á ryksugunni og þrífa allt hér hátt og lágt....mig langar að mála nokkra veggi hérna og helst henda mér í flísalagnir líka....en nei það er ekki í boði !!!!!  Ég er líka alveg búin að vera í gírnum til að henda mér í spandexgallann og gera 500 magaæfingar og hlaupa 20 hringi úti á velli.....ekki í boði heldur !!!!
Ef ég fengi einhverntímann þessar rosa þarfir fyrir þrifum og íþróttaiðkunum þegar ég er heil heilsu og ekkert í veginum þá væri ég yfir höfuð í góðum málum.....en nei það er ekki í boði þegar það á við !!!!

Þannig að gott fólk, það sem er í boði fyrir mig núna er að henda mér upp í sófa, gleypa í mig nokkur verkjatöflum og horfa á Dóru landkönnuð eða eitthvað álíka heilaskemmandi efni :whut:
Þetta er sjálfsagt eitt það leiðinlegasta blogg sem að ég hef á ævinni skrifað...en ég hef heldur ekki miklar áhyggjur af því þar sem fólk er á feisinu nú til dags og les ekki mikið af bloggum....en ég ætla samt að láta mig hafa það að blogga einstaka sinnum hér inn, því að það er jú rosalega gott fyrir sálina að koma þessu bulli sem flæðir um í hausnum á mér daglega hér inn og eins og ég hef nefnt áður þá virkar maður kannski aðeins eðlilegri á fólk svona dags daglega ;)
Nöldurblogg dagsins komið inn og ég tonni léttari 8)

Óskarósin kveður að sinni....kossar á ykkur ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.03.2008 15:05:10 / oskarosin

ER KOMINN TÍMI Á BLOGG...EÐA???

Jæja...þá hef ég nú víst legið í lengsta blogg dvala sem til er...ég þurfti svoleiðis að ryksuga mér leið inn í vefstjórnina og smyrja svo lyklaborðið til að getað ælt einhverju hér inn....ég er nú samt ekki alveg viss um hvað ég er að gera hér því að ég er engann veginn í stuði til að blogga eða bara gera nokkurn skapaðann hlut í þessu veðri:^)
Já hann Satann ákvað að heiðra okkur króksara með sínu endemis ljúfa ógeðsveðri...ég get svo svarið það að það lenti snjókorn á gluggnum mínum sem á stóð "MADE IN HELL"....og svo veit ég af háskólaskutlunni henni systir minni í gufu hita og springandi sól úti í Alabama...lyggjandi í öllu sínu veldi á sundlaugarbakkanum...að læra að sjálfsögðu..en samt að svolgra í sig margarítum því að ..jú bíddu...það er náttlega spring brake...en ekki hvað????

Ég get nú samt huggað mig við það að ég braut mér leið í gegn um veðurofsann í morgun og fór í hlíðó og keypti doldið af kaloríum og öðru slíku til að getað dottið í það á sætindum á meðan veðurdjöflarnir andskotast svoleiðis á öllum gluggum að ekki er neitt sem heitir svefnfriður í boði;)

En ég ætla nú ekki að hafa mikið fleyri orð um mína geðbresti hér inná...ákvað bara að gleðja eina litla BAKARÍIS snót sem hefur slegið met í að reyna að vekja upp lata bloggara og hættir víst ekki fyrr en takmarkinu er náð held ég....gjösso vel elskan...þú veist hver þú ert :haha:

en...GLEÐILEGA PÁSKA ræflarnir mínir...Óskarósin:p


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 22:16:21 / oskarosin

I am in shape...round is a shape!!!!

Ég get svo svarið fyrir það að nú þarf ég að taka mig á...

Þegar Röggi var úti á sjó í desember þá náði ég að missa nokkur kíló og leit þar af leiðandi þokkalega vel út þegar hann kom heim!!! Hann var í fríi í janúar og fór út á sjó núna á laugardaginn var...nema hvað...alltaf þegar hann er heima þá missi ég mig alveg í heimi óhollustunnar!!!
Ég gjörsamlega leifi sjálfri mér að tína upp hvert kílóið af fætur öðru, og ekki bara það sem ég var búin að missa heldur nokkur auka við það, í þessu tilfelli að minnsta kosti.....

Nú bara verð ég að taka mig taki og koma mér upp einhverjum snilldarinnar matseðli, sem er ekki bara hollur heldur góður líka....hef grun um hver gæti hjálpað mér við það....RAGGA ha?
Ég er alveg búin að fá nóg yfir því að vera að éta á mig eitthvert "Harold Bishop" útlit og langar að teigja mig aðeins yfir í "Jennifer Aniston" deildina!!!
Þetta þýðir að ég verð að hafa alla fjölskylduna með mér í þessari rótæku mataræðis umturnun minni...ÉG ER KOMIN MEÐ NÓG!!!

Það er ekki nóg með það að ég detti í það á sætindum og svínaríi þegar Röggi kemur heim...NEI...ég held ótrauð áfram í smá tíma eftir að hann fer!!!!
Við erum sko að tala um að ég tek þetta svo með trompi að það er erfitt að fara til baka og hætta í gosinu og taka upp óhamda vatnsdrykkju eins og maður á að gera!!! Kræst hvað ég þyrfti að fylla ísskápinn af einkaþjálfurum dauðans sem myndu öskra á mig að taka 300 magaæfingar á staðnum ef ég svo mikið sem snerti kókið eða eitthvað þeim mun meira fitandi...og svo væri alveg fínt að frændur Hitlers stæðu yfir mér í klukkutíma + á dag á meðan ég hamast á fína fína pilates boltanum sem ég keypti mér og hef bara notað einu sinni ( fékk hann fyrir 2 vikum og notaði hann í gærkvöldi )

En eins og ég segi: I am in shape...round is a shape!!!!

Jelly belly kveður að sinni...Óskarósin:P

» 13 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 20:39:34 / oskarosin

JÆJA......

Þá er kannski betra að gera eitthvað í þessari bloggleti minni....

Ég er bara búin að vera svo leiðinleg núna síðustu daga að mér hefur fundist nóg að bjóða fjölskyldunni minni og vinnufélögum upp á skapsveiflurnar, þó að fari nú ekki að riðjast á veraldarvefinn og rífa mig niðrí rassgat þar líka:whut:

En svona í alvöru....hvað er að manni stundum???? Ætli þetta sé partur af einhverju breitingaskeiði??? Ég meina það...það var alveg sama hvað hver sagði, ég var ekki lengi að finna eitthvað að því og vera alveg 100% ósammála:|  Meira að segja ÉG sjálf var farin að forðast það að hugsa því að ég var svo hrædd um að verða ósammála þeim hugsunum og jafnveg urra á mig fyrir að hugsa svona heimskulega:lol: Ég held að þetta sé JANÚARPIRRINGUR!!! Þó að svona jólaálfar eins og ég verði hálf öfugsnúnir eftir að árshátíðinni okkar miklu er lokið:haha:

En svona fyrir utan skapbresti, leiðinlegheit og ævintýralega ljótu að þá hefur sossem ekki mikið á daga mína drifið....enda lítið í boði þessa dagana:haha:

Einn fallegasti leikari allra tíma,Heath Ledger er dáinn og ég er mjög döpur yfir því:cry: R.I.P.

En jæja, ég er að spá í að reyna að hafa hemil á þessu liði mínu, nánar tiltekið mömmu og Rögga, en þau sitja andsetin inni í stofu og horfa á handboltann...ég bíð bara eftir að þau veki fyrir mér börnin svo að ég geti öskrað á þau af geðvonsku, eins og mér einni er lagið:haha:

Kveð að sinni....Óskarósin:P 


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 14:04:37 / oskarosin

AÐ BLOGGA....

....er eins og að fara í sturtu eftir erfiðann tíma í ræktinni! Ekki það að ég hafi nokkra hugmynd um það hvernig sú tilfinning er að fara í sturtu eftir tíma í ræktinni...en svona miðað við það sem ég hef heyrt að þá er þetta eitthvað álíka:D

Maður sest fyrir framan tölvuna og hreinsar hugann alveg og stendur svo upp alveg endurnærður og fær í flestann sjó;) Þannig að fyrir ykkur sem eiðið eins miklum tíma og ég í einveru, þá er þetta bara snilld...og ég veit um svo marga aðra sem eru á sama máli...maður dælir bara öllu hér inn, hvort sem það er í einhverju brjálæðiskasti eða bara til að koma frá sér einhverju skemmtilegu eða jafnvel tilgangslausu....en fyrir vikið hljómar maður ekki eins og biluð plata þegar maður hittir annað fólk svona face to face :D

BUT ANYHÚ....

Ég fór að gramsa í risastóra DVD safninu sem Hrafnhildur systir á og skildi eftir hérna á klakanum áður en hún óð á vit ævintýranna í fylki fellibilanna..og haldiði ekki að ég hafi bara fundið leiðina að betra lífi!!! Ég fann nokkra jóga diska og Carmen Electra erobic disk...þetta er svona doldið öðruvísi erobic, en lofar góðu samt;) Ég er nú ekki búin að setja neinn af þessum diskum í spilarann en er alveg staðráðin í að horfa á þá alla...hvort sem ég verði bara í sófanum með popp og kók eða hreinlega smelli mér í einhvern stjarnfræðilegann spandex galla og slæst í lið með Carmen...eða kryddi pínu upp á sálartetrið og fari í jógastellingarnar með Geri Halliwell...sem ég hafði ekki hugmynd um að væri einhver jóga gúrú :| Kannski maður verði bara orðin doldið andlega og líkamlega vel á sig komin með vorinu...hahaha...RIGHT...en hver veit ;)

Röggi fer að láta sjá sig hér heima eftir nokkra daga, en hann fór vikutúr með Klakknum...maðurinn er vanur að vera allt upp í 40 daga úti í einu með Málmeynni en svo fer hann í einn ofurstuttann túr og mér finnst tíminn bara ekki líða neitt...og mér finnst alveg ár og aldir síðan ég sá hann síðast 8| Reyndar er það nú þannig að þegar hann fer með Málmey, þá er fyrsta vikan alltaf lang lengst að líða og svo fer tíminn að þjóta, en staldrar svo við aftur og síðustu 3-4 dagarnir eru svo álíka lengi að líða og allur túrinn:|

Við mæðgur erum loksins að skríða saman eftir þessa indislegu veirusýkingu sem við fengum og erum við alveg ofur spenntar fyrir morgundeginum...stelpurnar fara til dagmömmu og í skólann og ég fer í vinnuna :haha:...LOKSINS...við erum farnar að vera ansi mikið fyrir hvor annari...ekki það besta sem getur komið fyrir okkur að vera innilokaðar í rúma viku!!! En nú taka við betri tímar og við reynum eftir bestu getu að umbera hvor aðra í dag, og hefur það gengið alveg ágætlega það sem af er degi :D

En jæja...þá hef ég skolað af mér í dag og líður bara alveg ljómandi:haha:

Þangað til næst.....Óskarósin:P 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 00:35:34 / oskarosin

Fer allt til fjandans hjá mér...eða hvað???

Já það má með sanni segja að pælingar mínar síðustu daga hafa verið frekar djúpar...enda búin að vera hálf einangruð frá öllu fullorðnu í nokkra daga og varla litið dagsins ljós án þess að fá framan í mig lækni sem rekur einhvern pinnadjöful lengst oní kok á mér:S

En þannig er að ég hef verið að líta yfir liðinn tíma og spá og spekulera af hverju maður velur sér einhverjar skrikkjóttar leiðir í lífinu þegar beini og breiði vegurinn er beint fyrir framann mann, með öllu sem hægt er að öðlast á svo einfaldann máta???

Ég fann það út að ég hef alltaf verið doldið mikið öfugsnúin og ætli það megi ekki líka segja forvitin!!! Ég sá aldrey neina spennu í að gera eitthvað sem að var svo skothelt að það var ekki hægt að klúðra neinu......NEI, ekki ég....ég fór í hina áttina...með óvissuna að leiðarljósi og metnaðarleysið uppmálað...þannig bara funkeraði ég lang best...helst vildi ég vera einhverstaðar þar sem enginn þekkti mig þannig að ég gæti spilað af fingrum fram og fallið inn í hópinn eins og hópurinn vildi hafa mig....ekki eins og ég vildi hafa mig...og gekk mér vel??? NEI!

Fyrir nokkrum árum síðan fór ég að sætta mig við sjálfa mig eins og ég er, og þá fyrst fór lífið að verða skemmtilegt...ég sá það að ef mér líkaði ekki við sjálfa mig, þá gæti ég ekki ætlast til að öðrum líkaði við mig heldur!!! Ég sem sagt sættist við sjálfa mig og fór að vinna í mér sem persónu...og vitiði, það virkar! Ég þarf ekki lengur að vera dómhörð eða að hneykslast á gjörðum annara, enda var ég löngu farin að taka eftir því skemmtilega mynstri að ef ég hneykslaðist á gjörðum annarar manneskju og talaði um það að þá leið ekki á löngu þar til ég stóð í nánast sömu sporum.....þannig að í dag reyni ég heldur að setja mig í spor þeirrar manneskju sem veldur "hneykslinu" og reyni að sjá út orsökina...því að það er alltaf rót að gjörðum fólks..hver sem hún er í það og það skipti...það er alltaf útskýring og yfirleitt skiljanleg! Kannski ekki jafn réttlætanleg samt.

Ég er í dag mjög ánægð með að hafa valið skrikkjóttu og erfiðu leiðina, því að ég er viss um að ég væri ekki sú sem ég er í dag ef ég hefði valið einverja aðra leið!!! Ég er ekki að segja að ég væri betri eða verri manneskja ef ég hefði gengið menntaveginn eins og ég hefði átt að gera,því að menntun er eitthvað sem allir eiga að öðlast og ég vil að mínar dætur gangi menntaveginn og geri eitthvað stórt úr sjálfum sér...ég er samt að segja að ég væri ekki ÉG...og ég held að ég kunni bara vel við mig þar sem ég er í dag...

Ef ég hefði farið hinn veginn, þá væri ég einhver allt önnur..einhverstaðar allt annarstaðar og kannski ekki nálægt því eins hamingjusöm og ég er í dag:haha:

Og nú er ég búin að vera of lengi innilokuð í pestabælinu...Óskarósin:Psátt við sig og sína..

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 08:56:39 / oskarosin

SNILLDAR BYRJUN Á NÝJU ÁRI....eða þannig!

Góðann daginn;)

Við fjölskyldan ákváðum að byrja nýja árið með því að leggjast í heljarinnar veikindi:(  Hér herjar á okkur gígantískt kvef, hiti, beinverkir, eyrnaverkir og allt sem hægt var að fá í þessu dásamlega nýjárs-pakkatilboði:S

Eldri stelpan okkar er búin að liggja síðan á fimmtudag og ég og yngri dóttirin lögðumst á sunnudagskvöld....við virðumst samt ætla að taka þetta eitthvað aðeins vægar en sú eldri. Röggi hefur sloppið enn sem komið er, og vona ég að hann haldi sér heilum og hraustum, því að hann er að skella sér út á sjó í dag í vikutúr á Klakknum:cry:

Ég hef ekkert skemmtilegt að segja hér núna, enda kannski ekki upp á mitt besta..en vona að ég fari nú að hrista þetta úr mér og byrja að njóta nýja ársins;)

Bið að heilsa ykkur í bili....Óskarósin:P.....lasin og ljót!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.12.2007 21:01:00 / oskarosin

Áramót....AFTUR????

Vá hvað árið er búið að vera óstjórnlega fljótt að líða...mér finnst það nýbyrjað8|

Árið hjá okkur er búið að vera gott og mikið búið að gerast....við byrjuðum nú á því að koma heim á gamlársdag í fyrra með nýjan fjölskyldumeðlim sem kom í heiminn 28 desember 2006...og vöknuðum við því á nýjársdag eftir fyrstu nóttina okkar öll saman heima sem fjögurra manna fjölskylda....ekki leiðinleg byrjun á árinu það:D

Systir mín sló hraðamet upp að altarinu þann 23 júní og harð giftist honum Kristjáni sínum, og héldu þau brúðkaup aldarinnar með pompi og pragt...ég verð að viðurkenna að fallegri brúði hef ég ekki áður litið og grenjaði ég alla athöfnina eins og enginn væri morgundagurinn:$

Ég fékk töluna 30 í hausinn þann 15 júlí..og mér finnst mjög skrítið hvað ég þroskaðist ekki upp í að vera einhver virt kona eins og ég var búin að sjá út fyrir lögu að myndi gerast hjá öllum sem næðu því að verða 30+....kannski gerist það um fertugt, hver veit;)

Eldri dóttir okkar byrjaði svo í skólanum í lok ágúst og enn beið ég eftir að verða dönnuð og virðuleg eins og flestar konur eiga að vera þegar þær eru orðnar mæður skólabarna...en nei...það bara gerist ekki hjá mér;)

Systir mín og hennar maður fengu skólastyrk og eru núna á þessai mínútu á Keflavíkurflugvelli á leiðinni til Alabama þar sem þau ætla að eiða næstu þrem árum á skólabekk....Góða ferð elskurnar...ég ætla að koma að heimsækja ykkur eins fljótt og ég get:D

Um hver áramót þá líður mér alltaf eins og að þegar nýja árið komi geti ég breytt öllu í kring um mig og að allt verði svo miklu betra....ég sem sagt bý til lista og ætla mér alltaf að fylgja honum eftir, en það er eitthvað sem gerist aldrey!!!!! Þetta er listi sem inniheldur þetta tíbíska "ég ætla að hætta og ég ætla að byrja á" þema, sem svo margir gera um hver áramót:| Það er engin breyting með það þessi áramót...listinn er orðinn yfirfullur af loforðum og nýjungum sem ég ÆTLA að standa við...en ætli það verði ekki í þetta skipti eins og öll hin að listinn verður óhreifður að ári....Kannski ég verði að ná betri aga á sjálfri mér til að geta staðið við svona stór og mikil orð....þannig að listinn minn fyrir nýja árið ætti í raun að innihalda eina setningu...NÁ BETRI SJÁLFSAGA...:haha: Sjáum til hvernig mér gengur með það.....

GLEÐILEGT ÁR OG TAKK FYRIR GAMLA......Óskarósin:P


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 23:56:16 / oskarosin

JÆJA...

Hver verður númer 10.000 á blogginu?????

 

VEGLEG VERÐLAUN Í BOÐI....OG ALLIR AÐ KVITTA!!!!!

Kveðja....Óskarósin:P....sem hefur ekki hugmynd um hverjir lesa ruglið í henni!!!


» 11 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 19:09:59 / oskarosin

AMMLISSBLOGG....

Unglambið hann maðurinn minn á afmæli í dag...já það er ekkert BIG 30 eins og hjá mér hér forðum...neibb það er bara LITTLE 29...til hamingju rjómalingurinn minn;) Guð hvað hann verður glaður að ég hafi kallað hann rjómaling...hahaha...:haha:

En já...Röggi er lagður af stað úr Rússnensku rúllettunni og eiga hann og áhöfnin að baki 40 daga LANGANN túr þegar þeir koma heim...þeir eru c.a. 5 sólahringa að sigla heim og ég er að rifna úr spenningi8| Ef ég væri með rófu þá mundi ég dilla henni eins og ég væri á stórhátíðarkaupi...svo spennt er ég...Ég held ég hafi aldrey saknað hans svona mikið, en hef oft saknað hans ansi mikið:!::!::!:

 

Þeir eru búnir að vera algjörlega símasambandslausir síðan á fyrsta sólahring og ég hef bara getað talað við hann á e-maili og hitt hann á myndum:cry: Frekar ópersónulegt og leiðigjarnt!!! Maður er varla búin að opna augun á morgnana þegar maður er búin að opna fyrir veraldarvefinn og byrjaður að gramsa í outlookinu í leit að bréfi frá dularfulla rjómalingnum:haha:...ég er að segja ykkur það að hann á eftir að vera svo stoltur af því að ég sé að kalla hann þetta...hahaha...eins og ég megi eitthvað við því að verða höfðinu styttri...best að taka rjómalingsnafnið til baka...DULARFULLI SJÓGARPURINN...eða eitthvað álíka karlmannlegt:haha:

En allavegana að þá er þessi óralangi túr að taka enda og við Málmeyjarkonur getum farið að brosa aftur...orðin frekar þung á okkur munnvikin:(

Kveð að sinni...og verið nú dugleg að spila jólalögin:!::!::!:...Óskarósin:P


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 21:43:43 / oskarosin

O.M.G....þvílík leti!!!!

Ég hef bara ekki haft nennu í að blogga eða bara gera nokkurn skapaðann hlut!!!

Ég ligg hér á kvöldin eins og fínasta vorrúlla..vafin inn í teppi og hef það gott:haha: Jólaskapið small á enninu á mér fyrir hálfum mánuði síðan og ég hef þurft að taka á honum stóra mínum að demba mér ekki í skreytingar og jólalagagaul8| Ekki mjög auðvelt að ná að hemja sig þar sem að ein ónefnd Ragnhildur er byrjuð og ég sé ekki fram á að hún staldri við í skreytingagleðinni, enda álíka bilaður jólaálfur og ég;)

Ég ætla samt að reyna að þrauka að minnsta kosti út þessa viku, og helst út næstu líka og svo held ég að villtir hestar haldi mér ekki eftir það:haha: Ó nei...ég er eins og heróínsjúklingur í frákvörfum þessa dagna og græt mig í svefn því að lagið Jingle bells hljómar alltaf hærra og hærra í hausnum á mér....þetta er alveg agalegt ástand:(

Nú er bara að fara að klára að þrífa fyrir jólin, taka alla glugga vel og vandlega í gegn...baka eina uppskrift af pipsrkökum og blása rikið af jóladiskunum...ef ég geri þetta hægt og rólega, þá verður þessi vika ekki lengi að líða og jólaljósin verða farin að skína skært í öllum gluggum hjá mér...ég ætla að missa mig alveg þetta árið....ég var með farþega innanborðs á síðasta ári og gat því miður ekki jólast eins og mér einni er lagið...ég á sem sagt uppsafnaða jólaorku frá því í fyrra og hún verður notuð óspart...látið ykkur því ekki bregða þó þið sjáið Betlehem fjölskylduna í allri sinni dýrð, uppljómaða á þakinu hjá mér hér á Hólaveginum, blikkandi jólaljósaflækjur með háværri bjöllutónlist og hreindýr í garðinum...Dísus hvað ég sleppi mér...en þið athugið það að þetta er bara það sem ég kem til með að framkvæma...svo kemur Hrafnhildur systir og slær mér við...ég veit ekki hvernig hún ætlar samt að fara að því,þar sem að ég á svona mikla jólaorku uppsafnaða síðan í fyrra...en hún tekur örugglega upp á einhverju ótrúlegu eins og að láta Kristján leiða sig norður á asna, og eignast barn í bílskúrnum hjá mér....það er eina leiðin til að slá mig út þetta árið:haha:

En jæja...ég ætla að hætta að tala um hvað ég ætla að gera í sambandi við skreytingar í ár...ég veðrast svo upp við þetta að ég er orðin hálf smeik við sjálfa mig8|

Fer bara að sofa...Óskarósin:P 


» 14 hafa sagt sína skoðun

27.10.2007 19:04:37 / oskarosin

ER VERÖLDIN AÐ SPRINGA ÚR SPIKI???

Já ég get varla orða bundist....

...ég skrapp í búðina í dag sem er nú ekki frásögu færandi, nema hvað að ég hef tekið eftir því að nánast í hvert einasta skipti sem ég fer eitthvað út í bæ, að þá skal ég alltaf sjá að minnsta kosti eina unglingsstelpu sem er að springa úr offitu:S Og það sá ég einmitt í búðinni í dag! Þetta er ekkert smá sorglegt...og það hrillilega við þetta er að þær virðast ekki gera sér nokkra grein fyrir því hvernig þær eru vaxnar:(

Þær eru yfirleitt klæddar í það þrengsta sem þær gátu mögulega troðið sér í, og helst með bumbuna bera undan bolnum og svoleiðis blússandi kameltá8| Ég get svo guðsvarið fyrir það að þetta er að verða algengari sjón heldur en að sjá unga stúlku í smærri kantinum!!!

Ég á bara ekki til eitt einasta orð!!! Hvað eru unglingar í dag að éta??? Eru þau að éta frá því þau vakna og þar til þau sofna...eða er bara málið að börn og unglingar í dag hreyfa sig bara alls ekki neitt??? Þetta er bara svo langt frá því að vera normal!!! Við hljótum að fara að falla undir sama hatt og Bandaríkin hvað hlutfallslega prósentu varðar í sambandi við offitu!!!

Er ég sú eina sem tek eftir þessu...ég er ekkert sérstaklega vön því að mæla fólk út til þess eins að dæma það...og ég ætla mér ekki að dæma einstaklinga sem eiga við þetta vandamál að stríða...en mér er allri lokið...þetta er bara svo svakalega sorglegt að horfa uppá, og ég kenni skyndibita og tölvuleikjum og þessháttar fyrirbærum um þetta!!! Hvernig væri að skyndibitastaðirnir færu að bjóða meira upp á eitthvað sem er hollt og gott í gegn, ekki eitthvað djúpsteikt og fitandi??? Væri það ekki alveg skref í rétta átt??? Ég er nebblega handviss um það að þó svo að þessar ungu fallegu stelpur færu að hreyfa sig meir, að þá væru þær samt alltaf til í að setjast niður og fá sér einn hundsveittann hammara og stóra kók með!!!

Nú krosslegg ég bara fingur að ég geti hindrað það að mínar dætur eigi eftir að glíma við þennan vanda....

ég kveð að sinni...Óskarósin:P


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 12:26:16 / oskarosin

ÞESSI LITLU GREY...

Já..það er ekkert upplífgandi í mér hljóðið í dag:(

Elsku litla dóttir mín er aftur komin með hita:(  Hún var búin að vera veik síðan á laugardag með einhverja hitapesti, mað rauð útbrot um allann líkamann og leiðinlegheit...svo fór ég með hana til dagmömmu í gærmorgun því að mér fannst hún svo hress, orðin hitalaus og fín..svo bara vaknaði þessi engill upp úr miðnætti í gær, mað hita og grét í mest alla nótt:(

Ég er því sem sagt ennþá vakandi síðan ég vaknaði í gærmorgun, ef svo má segja...ég náði einstaka dúrum í nótt en þó aldrey lengra en 20-30 mín í einu:(  Greyjinu líður svo illa...og mér finnst eins og ég geti sjálfri mér um kennt fyrir að hafa farið jafnvel of snemma með hana út...en hvað á maður að gera þegar maður er í vinnu??? Svo er ég með alveg þvílíkann móral yfir að geta ekki mætt í vinnu, og langaði helst til að fara að gráta þegar ég hringdi og tilkynnti veikindin í morgun...en ég er ein með þær hér heima og get nú lítið við þessu gert:cry:

 

Hef ekkert skemmtilegt að segja ykkur...Óskarósin... 


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 11:09:09 / oskarosin

Snjókorn falla....

Góðann dag;)

Ég get svo guð svarið fyrir það að ég er að komast í alveg óstjórnlegt jólaskap!!! Og ef ég hefði ekki snefil af sjálfsaga, þá væru komnar upp seríur og ímist jólabras hjá mér:haha: En ég geri mér nú alveg grein fyrir hvaða mánaðardagur er og held mig því á mottunni:$

En þó að það sé ekki allt hér útbíjað af jólaglingri, þá er ekki þar með sagt að ég sé ekki byrjuð að undirbúa...já ég er sko byrjuð, hægt og rólega, en samt byrjuð;) T.D. er ég hægt og sígandi að þrífa hér allt fyrir jólin...þá meina ég skápa og annað...nú jólakortin eru að fara að fæðast hjá mér og ég finn að föndur og bakstur eru hér rétt handan við hornið:D

Ég ætla samt ekki að byrja að hlusta á jólalög fyrr en í lok nóvember og þá verður sko tekið á því...það verður allt sett í botn og gjörsamlega rokkað út jólin;) Þegar kemur að því að setja upp seríur og skraut, þá get ég í alvöru misst mig...ég verð gjörsamlega óstöðvandi og þegar allt er komið á sinn stað, er eins og jólasveinninn hefi ælt yfir húsið hjá mér8| Já...ég er jólabarn og get ekkert að því gert! Meira að segja yrðu þeir sem þekkja mig best ekkert hissa á að sjá mig á ferli í desember, íklædda hreindýrapeysu með blikkljósum á...og börnin mín í einhverju álíka amerísku:D Rögga fengji ég samt aldrey til að fara í nokkuð þessu líkt, og tek þess vegna upp á því alltaf í desember, að hætta að kaupa rakvélablöð...þeir sem hann þekkja vita að hann lítur út eins og jólasveinninn þer hann er með svona mikið skegg:haha: Alveg sá ég við honum:haha:

Ég er að verða búin að ákveða gjafirnar handa nánast öllum þessi jól og næst á dagskrá er að fara og kaupa þær:D Ég held að flestir verði ánægðir þessi jól:haha:

Þeir sem koma hér við í kaffi vita líka að í desember á hverju ári er í boði kaffi sem heitir Grílukanill...og er þetta eins og bolli frá Betlehem brúkaður af vitringum, svo gott er þetta kaffi8| Já það má með sanni segja að jólin eru að koma og verða komin áður en við vitum af...þess vegna er það mitt mottó AÐ BYRJA SNEMMA OG NJÓTA ÞESS:haha:

En jæja álfarnir mínir...ég er hætt í bili og vona svo sannarlega að ég sitji ekki ein að þessum "vanda" ef svo má kalla, að geta ekki hamið mig þegar kemur að jólum:$

Kossar og jólaknús...Óskarósin:P 


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 22:45:50 / oskarosin

Freyju konfekt og Rósir...

Já það er brjálað að gera hjá mér þessa dagana...en lítið að segja frá:|

Kallinn heima og fjölbeytilegt líf í kjölfarið...sem sagt ekki bara ég hér heima og engin tilbreyting eins og vanalega:D 

Hef sem sagt lítið að segja núna en vildi bara blogga fyrir hana elskulegu vinkonu mína...þú veist hver þú ert;)

Best að snúa sér aftur að því að vera bissí í lífinu:haha:

kossar...Óskarósin:P 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012
RSS tengill